Tillaga meirihlutans í borginni um þrengingu Grensásvegar milli Miklubrautar og Bústaðavegar var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsráði í gær.
Í tillögunni á að fækka akreinum úr fjórum niður í tvær og lagning göngu- og hjólreiðastíga báðum megin við veginn. Alls hljóðar framkvæmdin upp á 170 milljónir króna. Í samtali við mbl.is segir Júlíus Vífill Ingvarsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Umhverfis- og skipulagsráði, er óverjandi að verja upphæðinni á þennan hátt.
„Það að fara þessa leið er úr öllum takti við þann raunveruleika sem blasir við öllum sem þekkja til reksturs borgarinnar. Það er verið að skera niður grunnþjónustu í grunnskólum, leikskólum og frístundaheimildum um 670 milljónir og um 420 milljónir á velferðarsviði. Það dylst engum að þetta getur komið niður á starfsöryggi starfsfólks,“ segir Júlíus Vífill og bætir við að allt stefni í 13 milljarða króna halla borgarsjóðs á síðasta ári.
Halldór Halldórsson og Marta Guðjónsdóttir tjáðu sig einnig um málið á Facebook.
[fb_embed_post href="https://www.facebook.com/halldor.halldorsson.14/posts/10207287885291909/" width="550"/]
[fb_embed_post href="https://www.facebook.com/permalink.php?story_fbid=10205426339919640&id=1284217546/" width="550"/]
