Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð. Hann er stærsta stjórnmálasamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.
Seturétt á landsfund eiga flokksráðsfulltrúar flokksins auk þess sem félög og fulltrúaráð kjósa fulltrúa til setu á fundinum.
· Til þess að sjá hvort þú sért í flokksráði (og þar með sjálfkjörin) ferðu á mínar síður – Flokkurinn – Núverandi trúnaðarstörf – Flokksráð
· Aðrir þeir sem hafa áhuga á að sitja landsfund geta óskað eftir seturétti fram til 1. október. Sjá nánar hér.
Á landsfundi eru stjórnir átta málefnanefnda Sjálfstæðisflokksins kjörnar til þess að leiða málefnastarfið milli landsfunda. Hér getur þú skilað inn framboði í málefnanefnd/ir.
Mótaðu stefnuna! Málefnastarf í aðdraganda landsfundar.
Ýmis tilboð fyrir landsfundargesti.
Landsfundur einn hefur vald til þess að breyta samþykktum Sjálfstæðisflokksins en þó getur landsfundur veitt miðstjórn eða flokksráði leyfi til bráðabirgðabreytinga milli landsfunda. Tillögur að breytingum á samþykktum Sjálfstæðisflokksins skulu hafa borist miðstjórn a.m.k. mánuði fyrir boðaðan landsfund.
Öllum tillögum að breytingum á skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins skal skila skriflega til miðstjórnar með því að senda tölvupóst á netfangið landsfundur@xd.is.
Skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins má nálgast hér.
Tillaga miðstjórnar um breytingar á skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins.